2. apr. 2019

Þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar leitar til íbúa bæjarins um að svara stuttri rafrænni könnun um starfsemi safnsins

  • Spilavinir í Bókasafni Garðabæjar
    Spilavinir í Bókasafni Garðabæjar

Bókasafn Garðabæjar leitar til íbúa bæjarins um að svara stuttri rafrænni könnun um starfsemi safnsins. Markmiðið er að veita sem besta þjónustu, fjölbreyttasta úrval bóka og gagna, viðburða og klúbba sem völ er á.
Hægt er að svara könnuninni á vef bókasafnsins, bokasafn.gardabaer.is, og fésbókarsíðu bókasafnsins.
Niðurstöður úr könnuninni hjálpa starfsfólki bókasafnsins við að þróa og byggja upp starfsemi safnsins.

Krækja á könnun: þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar

Upplýsingar um Bókasafn Garðabæjar má finna á vef safnsins.