15. jan. 2019

Upptakturinn - Tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna

Með Upptaktinum, Tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna, gefst ungu fólki færi á að senda inn tónsmíð eða drög að tónsmíðum og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listamanna. 

  • Upptakturinn
    Upptakturinn

Með Upptaktinum, Tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna, gefst ungu fólki færi á að senda inn tónsmíð eða drög að tónsmíðum og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listamanna. Upptakturinn er samstarfsverkefni Hörpu, Barnamenningarhátíðar, RÚV og Listaháskóla Íslands og er opinn 10 –15 ára ungmennum. Áhersla er lögð á að hvetja börn og unglinga til að semja sína tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Börnin sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum Skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands auk þess að vinna að tillögum að útsetningum verkanna undir leiðsögn nemenda Tónsmíðadeildar Listaháskóla Íslands.

Ungmenni úr Garðabæ geta tekið þátt í Upptaktinum – tónsmiðja og tónleikar í Hörpu

Annað árið í röð gefst ungmennum úr Garðabæ tækifæri til að taka þátt í Upptaktinum og á síðasta ári komst ungur nemandi úr Garðaskóla, Kristófer Ísak Ólafsson, í hóp þeirra sem fengu að fullvinna hugmynd sína í tónsmiðju í Hörpu. Á vefnum krakkaruv.is/upptakturinn má sjá tónverk og viðtöl við þátttakendur í fyrra vor.

Öllum börnum sem stunda nám í 5.-10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháða tónlistarstíl. Alls verða valin um 12-13 verk úr öllum innsendum hugmyndum sem fá að taka þátt í vinnustofu/tónsmiðju í Hörpu fyrri hluta mars mánuðar. Þar verða verk nemendanna fullunninn með aðstoð tónskálda og fagfólks í tónlist. Þriðjudaginn 9. apríl verða fullunnin tónverk flutt á tónleikadagskrá í Silfurbergi í Hörpu. Hljóðfæraleik og framkvæmd annast fagfólk í tónlist.

Upplýsingar um Upptaktinn – skilafrestur hugmynda til og með 13. febrúar nk.

Upplýsingar um Upptaktinn má fá á vef Hörpu: harpa.is/upptakturinn og á fésbókarsíðu Upptaktsins . Lengd tónverks skal vera 2-6 mínútur að hámarki, bæði einleiks- og samleiksverk fyrir allt að 5 flytjendur. Skila þarf inn tónsmíð inn í hefðbundinni eða grafískri nótnaskrift eða með hljóðritun. Hugmyndir, s.s. upptökur, nótur, texti eða grafíska lýsingu, má senda rafrænt á netfangið upptakturinn@gmail.com . Skilafrestur hugmynda er til og með 13. febrúar 2019.

Foreldrar- og forráðamenn eru eindregið hvattir til að upplýsa, aðstoða og hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í þessu skapandi og skemmtilega tónsmíðaverkefni.