19. okt. 2018

Garðabær tekur þátt í Útsvari

Garðabær mætir Ísafirði í spurningakeppninni Útsvari í kvöld föstudagskvöldið 19. október kl. 19:45 í beinni útsendingu í sjónvarpinu.

  • Útsvar í sjónvarpinu
    Spurningakeppnin Útsvar í sjónvarpinu

Garðabær mætir Ísafirði í spurningakeppninni Útsvari í kvöld föstudagskvöldið 19. október kl. 19:45 í beinni útsendingu í sjónvarpinu.  Áhorfendur eru velkomnir í sjónvarpssal hálftíma áður en útsending hefst í Efstaleiti.

Bein útsending frá Útsvari spurningakeppni sveitarfélaga fer nú fram tólfta árið í röð. Í þetta sinn verður keppnin snarpari en áður og lýkur með úrslitum í janúar. Þátttakendur í vetur eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komist hafa í úrslit síðustu ár, eða oftast komist nálægt því.  Lið Garðabæjar vann Útsvarskeppnina 2010 og hefur einnig komist í undanúrslit.

Í liði Garðabæjar eru: Vilhjálmur Bjarnason sem var í vinningsliðinu árið 2010, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og Jóel Ísak Jóelsson.

Á vef sjónvarpsins má sjá upplýsingar um keppnina í ár.