11. okt. 2021

Útikennsla við Vífilsstaðavatn

Undanfarin 22 ár hefur umhverfisnefnd Garðabæjar boðið grunnskólum bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns. Allt frá byrjun hefur Bjarni Jónsson þróunarvistfræðingur og fiskifræðingur séð um útikennsluna en honum til hjálpar er starfsfólk garðyrkjudeildar.

  • Útikennsla við Vífilsstaðavatn
    Útikennsla við Vífilsstaðavatn

Undanfarin 22 ár hefur umhverfisnefnd Garðabæjar boðið grunnskólum bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns. Allt frá byrjun hefur Bjarni Jónsson þróunarvistfræðingur og fiskifræðingur séð um útikennsluna en honum til hjálpar er starfsfólk garðyrkjudeildar.

Á hverju hausti fer 7. bekkur frá Sjálandsskóla, Flataskóla og Hofsstaðaskóla að Vífilsstaðavatni og Vífilsstaðalæk þar sem útikennslan fer fram. Kennslan við vatnið er liður í náttúrufræðikennslu skólanna og þessa vinsælu fræðslu hefur umhverfisnefnd Garðabæjar boðið upp á síðan 1999. Grunnur útikennslunnar er kennslubókin Vífilsstaðavatn – Gersemi Garðabæjar sem umhverfisnefnd gaf út árið 2001.

Smádýralífið kannað í Vífilsstaðavatni

Kennarar og nemendur komu hjólandi í útikennsluna sem í ár fór fram dagana 28.-30. september sl. íÚtikennsla við Vífilsstaðavatn heldur köldu og rysjóttu haustveðri. Bjarni tók á móti nemendum og fræddi þá um lífríki Vífilsstaðavatns sem er eitt lífríkasta vatn landsins miðað við fjölda dýra á fermetra. Í vatninu lifa smádýr eins og rykmýslirfur, vorflugulirfur, vatnabobbar, efjuflær og blóðsugur. Í Vífilsstaðalæknum finnast svipuð dýr nema þar sjást bitmýslirfur í stað rykmýslirfa. Nemendur söfnuðu eingöngu smádýrasýnum af steinum í Vífilsstaðavatni en venjulega eru líka söfnuð smádýrasýni af steinum í læknum til samanburðar. Hætt var við allar sýnatökur í læknum að þessu sinni því mikil afföll hafa orðið meðal smádýra og fiska eftir að Vífilsstaðalækurinn þornaði meira og minna upp seinni part sumars.

Heimsfræg hornsíli og óvenjuleg blanda álategunda í Vífilsstaðavatni

Í Vífilsstaðavatni lifa sérstæðir fiskistofnar urriða, bleikju, áls og hornsílis. Nemendur lærðu um hornsílin í vatninu sem eru stórmerkileg að því leyti að þau vantar kviðgadda en Vífilsstaðavatn er eitt fárra vatna í heiminum og það eina hér á landi með kviðgaddalaus hornsíli. Sílin uppgötvaði Bjarni með nemendum í útikennslu haustið 2002 og nú eru hornsílin í Vífilsstaðavatni heimsfræg á sviði þróunar- og erfðafræða. Bjarni lumaði á ýmsum fróðleik um ála m.a. að óvenjuleg blanda af glerálum gengur upp Vífilsstaðalæk í Vífilsstaðavatn þ.e. bæði evrópuáll og blendingar af ameríkuál og evrópuál en eftir því sem best er vitað er Ísland eina landið þar sem blendingar þessara tegunda finnast. Bjarni ræddi einnig nýjan landnema á Íslandi, flatfiskinn flundru (ósalúru), sem fyrst varð vart í Ölfusárósi 1999. Í dag lifir flundra bæði í sjó og árósum frá sunnanverðum Austfjörðum suður um í Skagafjörð og hefur Bjarni m.a. veitt flundrur í árósi Hraunholtslækjar við Sjálandsskóla. Flundra hrygnir í sjó en notar árósa, ár og læki sem uppeldissvæði og á þann hátt keppir hún við silung og aðrar fiskitegundir um pláss og fæðu. Hérlendis hafa rannsóknir sýnt að flundra étur seiði urriða, bleikju, hornsílis og lax og því getur vistsamfélag í árósum og straumvötnum breyst verulega ef fjöldi flundra vex. Í lok kennslunnar sýndi Bjarni hvernig kryfja á fisk og nemendur lærðu um leið um aldurs- og kyngreiningu, líffræði og lífeðlisfræði fiska. Að lokinni útikennslu fengu nemendur smádýrasýni og silung úr vatninu með sér í skólann til nánari rannsókna undir handleiðslu kennara.