Vegavinna á Karlabraut og á hringtorgi við Vífilsstaðaveg
Á morgun, miðvikudaginn 28. maí mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Karlabraut, frá Vífistaðavegi að Hofstaðabraut, einnig á hringtorgi við Vífilsstaðaveg.
Á morgun, miðvikudaginn 28. maí mun Loftorka vinna við fræsun malbiks á Karlabraut, frá Vífistaðavegi að Hofstaðabraut, einnig á hringtorgi við Vífilsstaðaveg.
Áætlað er að framkvæmdir verði með eftirfarandi hætti:
- Hringtorg Vífilsstaðavegar og Karlabrautar: Byrjað verður um klukkan 9:00 og unnið til hádegis. Áætlað er að opna fyrir umferð um klukkan 13:00
- Karlabraut, frá Vífilsstaðavegi að Hofstaðabraut: Áætlað er að vinna hefjist um klukkan 12 og unnið fram eftir degi.
Götukaflarnir verða lokaðir fyrir alla umferð á meðan framkvæmdir standa yfir, en hjáleiðir verða merktar eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplönum.