12. apr. 2019

Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið

Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið en það stendur yfir frá 1. apríl til 15. september. 

  • Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið
    Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið

Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið en það stendur yfir frá 1. apríl til 15. september. Stangveiðileyfi í Vífilsstaðavatni eru seld með veiðikortinu á sölustöðum N1, Olís, Íslandspósti og veiðivöruverslunum um land allt. Kortið kostar 7.900 kr. og veitir aðgang að fjölmörgum vatnasvæðum um allt land. Veiðikortið gildir eingöngu fyrir eina stöng en börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.

Nánari upplýsingar um veiðikortið og Vífilsstaðavatn má finna á vef veiðikortsins.

Dagsveiðileyfi er hægt að kaupa á 1000 kr. í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7 en leyfilegt er að veiða í vatninu frá kl. 8:00 til kl. 24:00.

Eingöngu er heimilt að nota flugur, maðk og spón. Öll önnur beita og smurefni eru stranglega bönnuð í vatninu.

Athugið að bannað er að veiða á merktu svæði norðanmegin í vatninu vegna verndunar varpsvæða flórgoðans og þá er öll umferð báta, og kajaka bönnuð á vatninu. Að gefnu tilefni er nefnt að ekki er leyfilegt veiða í Urriðavatni.

Veiðimenn og útivistarfólk er vinsamlegast beðið um að ganga vel og snyrtilega um friðlandið og alls ekki henda girni, krókum né rusli á jörðina þar sem það er stórhættulegt fuglalífinu.

Skýringarmynd af verndarsvæði flórgoðans.