29. okt. 2019

Vel heppnaður menntadagur

Föstudaginn 25. október sl. var starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag var boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum. 

  • Menntadagur 2019
    Menntadagur 2019

Föstudaginn 25. október sl. var starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag var boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum. Þar gafst kennurum kostur á að velja úr og hlýða á fjölbreytt erindi í málstofum í húsnæði Hofsstaðaskóla en þetta var í fjórða sinn sem sérstakur menntadagur er haldinn í Garðabæ með þessum hætti.

Mörg áhugaverð erindi voru á dagskrá þar sem fjallað var um verkefni sem hlotið hafa styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár. Einnig var kynning á meistaraverkefnum einstakra kennara ásamt verkefnum frá kennurum Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Auk málstofanna voru settir upp kynningarbásar og veggspjöld þar sem fleiri verkefni sem hafa hlotið styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla voru kynnt.

Góð mæting var á menntadaginn líkt og fyrri ár. Fjölmargar málstofur voru í boði og voru þær vel sóttar.

Menntadagur 2019

Menntadagur 2019

Menntadagur 2019