16. sep. 2020

Vel heppnuð uppskeruhátíð skólagarðanna

Uppskeruhátíð skólagarðanna í Silfurtúni var haldin laugardaginn 12. september sl. í mildu haustveðri.

  • Uppskeruhátíð skólagarðanna
    Uppskeruhátíð skólagarðanna

Uppskeruhátíð skólagarðanna í Silfurtúni var haldin laugardaginn 12. september sl.  í mildu haustveðri.
Börn sem voru með garð í skólagörðunum í sumar mættu ásamt fjölskyldum sínum og unnu saman að því að stinga kartöflur og grænmeti upp úr görðunum. Þeir eldri borgarar sem höfðu nýtt sér að kaupa garð viku eftir að krökkunum var úthlutaður garður mættu einnig og tóku upp sína uppskeru.

Í skólagörðunum í sumar voru ræktaðar kartöflur, fjölmargar káltegundir og salöt.
Boðið var upp á grillaðar pylsur til að fagna góðu starfi og viðurkenningarskjöl veitt fyrir þátttöku í skólagörðunum.

Uppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðannaUppskeruhátíð skólagarðanna