2. feb. 2021

Vetrarhátíð í Garðabæ

Vetrarhátíð verður haldin dagana 4. – 7. febrúar 2021.
Vegna sóttvarnaráðstafanna verður hátíðin með breyttu sniði í ár. Lögð verður áhersla á list í almannarými, útilistaverk og ljóslistaverk.

  • Vetrarhátíð
    Vetrarhátíð er haldin 4. -7. febrúar 2021. Vegna sóttvarnaráðstafanna verður hátíðin með breyttu sniði í ár. Lögð verður áhersla á list í almannarými, útilistaverk, menningarmerkingar og ljóslistaverk.

Vetrarhátíð verður haldin dagana 4. – 7. febrúar 2021.
Vegna sóttvarnaráðstafanna verður hátíðin með breyttu sniði í ár. Lögð verður áhersla á list í almannarými, útilistaverk og ljóslistaverk.

Skemmtilegir viðburðir verða í boði í Garðabæ sem Garðbæingar eru hvattir til að kynna sér.

Útilistaverk, rafræn leiðsögn | Vetrarhátíð í Garðabæ

Leiðsögn með Birtu Guðjónsdóttur sýningarstjóra um fimm af útilistaverkum sem staðsett eru í Garðabæ. Leiðsögnin er aðgengileg hér fimmtudaginn 4. febrúar kl. 12. 

Viðburður á facebook.

Ljósker, afmælishátíð Leirlistafélgs Íslands við Hönnunarsafn Íslands | Vetrarhátíð í Garðabæ

Í tilefni af 40 ára afmæli Leirlistafélags Íslands verður kveikt á 44 ljóskerum fyrir utan Hönnunarsafn íslands fimmtudaginn 4. febrúar kl. 18 - 20. Viðburðinn er hluti af Vetrarhátíð í Garðabæ og stendur frá 4. -7. febrúar.
Kveikt verður á ljóskerunum alla dagana sem Vetrarhátíð stendur yfir og munu þau loga til kl. 20 á kvöldin.

Viðburður á facebook.

Örvídd, ljóslistaverk á Vífilsstöðum | Vetrarhátíð í Garðabæ

Föstudaginn 5. febrúar frá kl. 18:00 – 23:00 mun ljóslistaverk Hrundar Atladóttur, Örvídd, lifna við á Búshúsinu við Vífilsstaðaveg 105, við Vífilsstaðaspítala. Hægt er að njótið af bílastæði andspænis spítalanum, hljóðverki eftir Geir Helga Birgisson verður varpað samtímis á rás FM 107,5.

Viðburður á facebook.

Berklaganga | Vetrarhátíð í Garðabæ

Laugardaginn 6. febrúar annars vegar klukkan 13:00 og hins vegar kl. 15:30 (tvær göngur í boði) leiðir Einar Skúlason göngugarpur og sagnfræðingur göngu sem hefst við aðalbílastæði Vífilsstaða. Á Berklahælinu á Vífilsstöðum var lagt mikið upp úr útivist og fersku lofti og þegar sjúklingar gátu var hvatt til gönguferða. Nauðsynlegt er að skrá sig í göngurnar en tekið er við skráningum á olof@gardabaer.is. Vegna fjöldatakmarkana komast aðeins 20 í hvora göngu.

Viðburður á facebook.

Söguganga | Vetrarhátið í Garðabæ

Sunnudaginn 7. febrúar klukkan 13:00 fer höfundur Fíusólar, Kristín Helga Gunnarsdóttir, í fjölskyldugöngu sem hefst við leikskólann Lundaból við Hofsstaðabraut. Slóðir Fíusólar verða rannsakaðar og sögurnar á bak við sögurnar ræddar. 

Viðburður á facebook.