11. nóv. 2022

Vill grenitréð þitt verða jólatré?

Þjónustumiðstöð Garðabæjar auglýsir eftir fallegum grenitrjám úr einkagörðum til að nota sem jólatré á opnum svæðum bæjarins.

  • Jólatré sett upp á Garðatorgi

Starfsmenn bæjarins koma á staðinn, skoða tréð og fjarlægja það, lóðareigendum að kostnaðarlausu, ef það getur nýst sem jólatré.  Þeir sem eiga falleg grenitré sem gætu hentað er velkomið að hafa samband við Sigurð Hafliðason, forstöðumann þjónustumiðstöðvar Garðabæjar, í gsm síma 820 8527 eða í netfangi sigurdurhaf@gardabaer.is.