14. maí 2018

Vorhreinsun lóða

Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður dagana 14.-25. maí nk. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.

  • Vorhreinsun 2018
    Vorhreinsun 2018

Vorhreinsun lóða í Garðabæ verður dagana 14.-25. maí nk. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.

Bæjarbúar eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu bæjarins því að vorhreinsun lokinni verða lóðarhafar sjálfir að flytja garðúrgang í endurvinnslustöðvar SORPU og/eða nýta safnkassa á lóðum. Greinar og tré sem sett eru við lóðamörk verða fjarlægð á sömu dögum.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða dagsetningar gilda fyrir stök hverfi í bænum. 

Hreinsun á garðúrgangi:

14.-16. maí: Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Ásar, Grundir, Sjáland, Arnarnes, Akrar, Vífilsstaðir, Urriðaholt

17.-22. maí: Tún, Mýrar, Garðatorg, Móar, Byggðir, Lundir, Búðir, Bæjargil, Hæðahverfi, Hnoðraholt

23.-25. maí: Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar