31. maí 2024

Forsetakosningar 2024

Forsetakosningar fara fram laugardaginn 1. júní 2024.

  • Forsetakosningar 2024
    Kjörfundur vegna kjörs forseta Íslands, laugardaginn 1. júní 2024, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni og Álftanesskóla.

Kjörfundur vegna kosninga til embættis forseta Íslands, er fram eiga að fara laugardaginn 1. júní 2024, verður í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut (beygt inn af Bæjarbraut, á milli Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ) og í Álftanesskóla við Breiðumýri.

  Allar nánari upplýsingar um kjörfund í Garðabæ má finna hér.

Athygli er vakin á að milli klukkan 11:00-13:00 er útskrift stúdenta úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og má búast viðumferð að svæðinu verði þung og aðgangur að bílastæðum takmarkaður. Kjósendur sem eiga þess kost eru hvattir til að koma gangandi eða hjólandi á kjörstað til að minnka álag á umferð.

Í íþróttamiðstöðinni Mýrinni verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.

I. Kjördeild Aftanhæð – Birkihæð

Íslendingar búsettir erlendis

II. Kjördeild Bjarkarás – Eyktarhæð

III. Kjördeild Fagrahæð – Holtsbúð, Espilundur, Holtsvegur 53-57

IV. Kjördeild Hraunás – Keldugata, Hallakur, Háholt, Holtsvegur 2-51

V. Kjördeild Kinnargata - Lindarflöt

VI. Kjördeild Línakur – Mosagata 8

VII. Kjördeild Mosagata 9 – Strandvegur 19

VIII . Kjördeild Strandvegur 20 - Ögurás

 

Í Álftanesskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.

I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi

II. Kjördeild Litlabæjarvör – Þóroddarkot

(Húsanöfn)

Sjá nánari upplýsingar um einstaka götur hér fyrir neðan.

Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis og áttu síðast lögheimili hér á landi í Sveitarfélaginu Álftanesi eða Garðabæ eiga kosningarrétt í sextán ár frá brottflutningi. Þeir eru allir á kjörskrá í I. kjördeild í íþróttamiðstöðinni Mýrinni.

Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni Mýrinni á meðan á kjörfundi stendur og hverfiskjörstjórn Álftaness verður með aðsetur í húsnæði Álftanesskóla.

Talning atkvæða fer fram hjá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis sem er með aðsetur í Kaplakrika.

Yfirkjörstjórn Garðabæjar

Kjördeildir og götur fyrir forsetakosningar - íþróttahúsið Mýrin (við Hofsstaðaskóla)

Kjördeildir og götur fyrir forsetakosningar - Álftanesskóli