Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar
Bæjarstjórn Garðabæjar fundar að jafnaði fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast fundirnir kl. 17. Áhugasamir geta fylgst með fundunum í beinni útsendingu á vef Garðabæjar og einnig er hægt að horfa á upptökur af fundunum á vefnum.
-
Sveinatunga - fjölnota fundarsalur bæjarins á Garðatorgi
Bæjarstjórn Garðabæjar fundar að jafnaði fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast fundirnir kl. 17. Fundir bæjarstjórnarinnar eru haldnir í fjölnota fundarsalnum Sveinatungu á Garðatorgi 7. Íbúar sem og aðrir áhugasamir geta mætt á staðinn og fylgst með fundunum þar sem fundirnir eru öllum opnir með fyrirvara um fjarlægðarreglu vegna sóttvarna. Jafnframt er fundunum streymt beint á vef Garðabæjar og einnig er hægt að horfa á upptökur af fundunum hér á vefnum.
Næstu fundir bæjarstjórnar Garðabæjar á haustönn 2021 eru fyrirhugaðir á eftirfarandi tímum:
4. og 18. nóvember
2. og 16. desember
Útsendingar og fundargerðir
Hér má sjá útsendingu síðasta fundar bæjarstjórnar.
Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund.
Upptökur (myndupptökur og eldri hljóðupptökur) af fundum bæjarstjórnar má sjá hér.