26. apr. 2019

Jazzhátíðin fer vel af stað

Jazzhátíð Garðabæjar er nú haldin í fjórtánda sinn. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, setti hátíðina með formlegum hætti að kvöldi til Sumardaginn fyrsta þegar fyrstu tónleikar hátíðarinnar fóru fram.

  • Bjössi Thor og Unnur Birna á Jazzhátíð Garðabæjar
    Bjössi Thor og Unnur Birna á Jazzhátíð Garðabæjar

Jazzhátíð Garðabæjar er nú haldin í fjórtánda sinn.  Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, setti hátíðina með formlegum hætti að kvöldi til Sumardaginn fyrsta þegar fyrstu tónleikar hátíðarinnar fóru fram.  Þau Björn Thoroddsen gítarleikari og Unnur Birna Bassadóttir fiðluleikari og söngkona stigu á svið í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, fimmtudagskvöldið 25. apríl fyrir troðfullum sal af fólki.  Björn og Unnur Birna heilluðu tónleikagesti með framkomu sinni og framúrskarandi tónlistarflutningi þegar þau fluttu vel valin uppáhaldslög í fjölbreyttum útsetningum.  Ung og efnileg hljómsveit úr Tónlistarskóla Garðabæjar hitaði upp fyrir tónleikana.  

Dagskrá Jazzhátíðarinnar má sjá hér í viðburðadagatalinu á vefnum og fylgist líka með á fésbókarsíðu jazzhátíðarinnar. 

Bjössi Thor og Unnur Birna á Jazzhátíð GarðabæjarBjössi Thor og Unnur Birna á Jazzhátíð Garðabæjar

Færeyskt fusion á föstudagskvöldi

Í kvöld, föstudagskvöldið 26. apríl stígur á stokk í Kirkjuhvoli kvintett færeyska bassaleikarans Arnold Ludvig. Hann leikur á bandalausan rafbassa af einstakri snilld og hefur safnað í kring um sig nokkra af þekktustu jazzmönnum íslensku þjóðarinnar. Tónlistin er kraftmikil og aðgengileg, á mörkum jazz, rokks, funks og blús.

Samfelld jazzveisla á laugardeginum

Á laugardeginum 27. apríl geta gestir notið jazztónlistar allan daginn fram á kvöld en fyrstu tónleikarnir hefjast kl. 14 í félagsmiðstöðinni Jónshúsi í Sjálandi. Þar kemur fram söngdívan Kristjana Stefánsdóttir og flytur ásamt valinkunnum hljóðfæraleikurum vel valda jazzstandarda. Kl 16 verða skemmtilegir tónleikar í Kirkjuhvoli en þar kemur fram Kvartett Kjarr, hljómsveit sem að hluta til er skipuð kennurum rytmískrar deildar Tónlistarskóla Garðabæjar. Hátíðinni lýkur með hressilegum tónleikum sveiflubandsins Arctic Swing Quintet í Kirkjuhvoli kl 20:30.

Næsta kynslóð hitar upp!

Hljómsveitir úr Tónlistarskóla Garðabæjar hita upp fyrir alla kvöldtónleikana í Kirkjuhvoli og hefst þeirra leikur um kl. 20. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði jazzhátíðarinnar og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.