Málþing um börn og samgöngur
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþinginu „Börn og samgöngur“ sem verður haldið í Garðabæ mánudaginn 18. nóvember.
-
Málþing um börn og samgöngur
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþinginu „Börn og samgöngur“. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi 7 mánudaginn 18. nóvember frá 12:30 til 16:30. Sjá dagskrá hér í viðburðadagatalinu.
Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Hlekk í skráningu má finna hér í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.