Menntadagur 2019
Föstudaginn 25. október nk. er starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag verður boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum. Þar gefst kennurum kostur á að velja úr og hlýða á fjölbreytt erindi í málstofum í húsnæði Hofsstaðaskóla en þetta er í fjórða sinn sem sérstakur menntadagur er haldinn í Garðabæ með þessum hætti.
-
Menntadagur í Garðabæ

Kynning á áhugaverðum erindum
Mörg áhugaverð erindi eru á dagskrá þar sem fjallað verður um verkefni sem hlotið hafa styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár. Einnig verður kynning á meistaraverkefnum einstakra kennara ásamt verkefnum frá kennurum Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Meðal verkefna sem fjallað verður um er heilsueflandi vinnustaður, vinur okkar Lubbi, velferð barna í Garðabæ, PlastPlan - Garðaskóli sem plastendurvinnslustöð, atvinnutengt nám í Sjálandsskóla auk fleiri verkefna. Auk málstofanna verða settir upp kynningarbásar og veggspjöld þar sem fleiri verkefni sem hafa hlotið styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla eru kynnt.
Á vef Garðabæjar má sjá lista yfir öll verkefni sem hafa hlotið styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla á undanförnum árum auk þess sem lokaskýrslur þróunarverkefnanna eru birtar á vefnum um leið og verkefnunum er lokið.