17. okt. 2018

Menntadagur í Garðabæ

Föstudaginn 26. október nk. er starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag verður boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum.  

  • Frá menntadegi 2017
    Frá menntadegi 2017

Föstudaginn 26. október nk. er starfsdagur í leik- og grunnskólum Garðabæjar og eftir hádegi þann dag verður boðið upp á sérstakan menntadag fyrir kennara og starfsfólk á báðum skólastigum. Þar gefst kennurum kostur á að velja úr og hlýða á fjölbreytt erindi í málstofum í húsnæði Hofsstaðaskóla en þetta er í þriðja sinn sem sérstakur menntadagur er haldinn í Garðabæ með þessum hætti.

Fjölbreytt verkefni kynnt í málstofum og kynningarbásum

Mörg áhugaverð erindi eru á dagskrá þar sem fjallað verður um verkefni sem hlotið hafa styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár. Einnig verður kynning á meistara- og doktorsverkefnum einstakra kennara ásamt verkefnum frá kennurum Fjölbrautaskólans í Garðabæ.  

Meðal verkefna sem fjallað verður um er vellíðan í skólastarfi, hönnunarhugsun, sex lyklar að lesskilningi, réttindastofa UNICEF, leikur sem kennsluaðferð, fjölval, nýjar leiðir í hópaskiptingu, stafræn borgaravitund, tenging skóla og atvinnulífs, núvitund og slökun, markvisst tónlistarstarf, karlar í kennslu, auk fleiri verkefna. Auk málstofanna verða settir upp kynningarbásar og veggspjöld þar sem fleiri verkefni sem hafa hlotið styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla eru kynnt.

Á vef Garðabæjar má sjá lista yfir öll verkefni sem hafa hlotið styrk úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla á undanförnum árum auk þess sem lokaskýrslur þróunarverkefnanna eru birtar á vefnum um leið og verkefnunum er lokið.