Skólaheimsókn í Krók
Í byrjun vikunnar heimsóttu skólabörn í 3. og 4. bekk Sjálandsskóla bæinn Krók á Garðaholti. Skólabörnin hafa verið í þemavinnu um Garðabæ og af því tilefni var farið í langan göngutúr (um 4 km hvora leið)
Í byrjun vikunnar heimsóttu skólabörn í 3. og 4. bekk Sjálandsskóla bæinn Krók á Garðaholti. Skólabörnin hafa verið í þemavinnu um Garðabæ og af því tilefni var farið í langan göngutúr (um 4 km hvora leið) í fallegu veðri út á Garðaholtið. Börnin skoðuðu húsakynnin og þóttu gaman að sjá gömlu húsmunina sem eru varðveittir í Króki. Á heimasíðu Sjálandsskóla má sjá fleiri myndir úr gönguferðinni.
Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar. Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.