Frábær Draumahátíð
Lokahátíð Listadaga barna og ungmenna fór fram laugardaginn 1. maí sl. í gamla Hagkaupshúsinu á Garðatorgi. Leikfélagið Draumar sá um skipulagningu og undirbúning lokahátíðarinnar og það var sannkölluð Draumahátíð sem var í boði þennan dag.
Skemmtun fyrir alla aldurshópa
Hópar frá leikfélaginu Draumum sýndu dansa og einnig voru dansatriði frá Dansskóla Birnu Björnsdóttur. Auk þess voru söng- og dansatriði frá Garðaskóla og m.a. voru sýnd atriði úr söngleiknum Dirty Dancing sem enn er verið að sýna í Garðaskóla/Garðalundi. Að lokum kom hljómsveitin Bermúda og spilaði nokkur lög.
Á meðan á lokahátíðinni stóð gátu gestir einnig skoðað samsýningu FG og afrakstur listasmiðju barna sem verður opin daglega frá 14-18 til 7. maí nk. í gamla Hagkaupshúsinu.
Sjá einnig fleiri myndir frá lokahátíðinni í myndasyrpu hér á heimasíðunni.