13. jún. 2016

Framkvæmdir á Garðatorgi

Framkvæmdir í miðbæ Garðabæjar eru í fullum gangi þessa dagana þar sem byrjað hefur verið á grunni við nýtt hús Garðatorg 6, þar er gert er ráð fyrir verslun eða þjónustu á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. Vegna framkvæmda við Garðatorg 6 verður innkeyrsla inn á Garðatorg sunnan megin frá færð til austurs.
  • Séð yfir Garðabæ

Við færslu innkeyrslunnar þarf að loka tímabundið fyrir akandi umferð frá Vífilsstaðavegi inn á Garðatorgið.  Aðrar leiðir sem eru færar inn á Garðatorg er um Bæjarbraut en einnig verður mögulegt að aka að torginu frá Vífilsstaðavegi um Kirkjulund að bílastæðum austan við Garðatorg 7.  

Lokunin á innkeyrslunni inn á Garðatorg frá Vífilsstaðavegi verður næstu 2-3 vikur á meðan á færslu innkeyrslunnar stendur,  jafnframt verða núverandi lagnir frá Mílu og regnvatnslagnir færðar til auk þess sem settar verða snjóbræðslulagnir, malbikað og hellulagt. Vegfarendur eru beðnir um að virða alltaf merkingar og sýna aðgát við vinnusvæði. Vegfarendum er einnig bent á að nota bílastæði í bílakjallara undir Garðatorgi.

Sjá frétt um malbikun og aðrar framkvæmdir sumarsins frá því í maí.

Sjá frétt um miðbæ Garðabæjar frá því í mars.