Ljósin tendruð á jólatrénu
Laugardaginn 28. nóvember sl voru ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi. Þetta er i fertugasta sinn sem Askerbúar senda Garðabæingum jólatré sem vinatákn í aðdraganda jóla.
Athöfnin á laugardaginn fór fram í fallegu og björtu vetrarveðri og fjölmenni lagði leið sína í nýja garðinn á Garðatorgi þar sem vinabæjarjólatréð stendur. Að venju var það blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar sem hóf dagskrána og lék fyrir gesti við góðar undirtektir. Því næst steig formaður Norræna félagsins í Garðabæ, Katrín Káradóttir, á svið og kynnti dagskrána.
Sendiherra Noregs á Íslandi Margit Tveiten afhenti tréð fyrir hönd Asker og flutti stutta ræðu á íslensku. Páll Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Garðabæjar veitti trénu viðtöku og fékk svo til liðs við sig tvo unga nemendur úr 3. bekk í Flataskóla þau, Alexander Eðvald Magnússon og Helenu Bryndísi Hauksdóttir, við að tendra ljósin á jólatrénu. Nemendur úr Flataskóla stigu svo á svið og fluttu mörg falleg jólalög í tilefni dagsins. Að lokum komu tveir jólasveinar fyrr til byggða og skemmtu áhorfendum á öllum aldri með gríni, glens og söng.
Í myndasafninu á heimasíðu Garðabæjar má sjá fleiri myndir frá athöfninni sl. laugardag.
Margt var um að vera á Garðatorginu þessa helgi og má þar nefna leiksýningu í bókasafninu, opnun myndlistarsýningar í Listasal Garðabæjar, jólamarkað í gamla Hagkaupshúsinu. Auk þess voru verslanir og gallerí með opið hús.
Blásarasveit Tónlistarskólans hóf dagskrána með fallegum tónum.
Frá vinstri: Katrín Káradóttir formaður Norræna félagsins, Margit Tveiten sendiherra Noregs og Páll Hilmarsson forseti bæjarstjórnar.
Garðbæingar á öllum aldri mættu á Garðatorgið.
Jólasveinar ásamt efnilegum söngvurum úr Flataskóla.
Ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu.