14. ágú. 2009

Gott forvarnastarf

Í nýjum forvarnapósti frá forvarnanefnd Garðabæjar er greint frá því að það er almennt mat forvarnafulltrúa og starfsfólks að starfið í vetur bæði í félagsmiðstöð og skóla í unglingadeildum hafi gengið afar vel.
  • Séð yfir Garðabæ

Í nýjum forvarnapósti frá forvarnanefnd Garðabæjar er greint frá því að það er almennt mat forvarnafulltrúa og starfsfólks að starfið í vetur bæði í félagsmiðstöð og skóla í unglingadeildum hafi gengið afar vel.  Ekki fundust miklar marktækar breytingar á högum og líðan krakkanna þrátt fyrir krepputal.  Þátttaka var góð í einu og öllu og lagt kapp á að halda hefðbundinni dagskrá í unglingastarfinu.

 

Sjá nánar : Forvarnapóstur, (júní 2009)

 

Flokkstjórafræðsla

Formaður forvarnanefndar tók þátt í flokkstjórafræðslu hjá Vinnuskóla Garðabæjar fyrir sumarið.  Flokkstjórum voru kynntar áherslur forvarnanefndar Garðabæjar sem varða mikilvægi þess að huga að hverjum og einum einstaklingi við skipulag vinnuhópa, leggja áherslu á góð samskipti innan hópa og að fram fari umræður um gildi og samfélagsmál eftir því sem tækifæri skapast. Einnig var ítrekað hversu miklir áhrifavaldar flokkstjórar geta verið sem fyrirmyndir í sumarstarfinu.

 

Sumarátak SAMAN hópsins

Forvarnarnefnd tók einnig þátt í sumarátaki SAMAN hópsins með því að auglýsa samveru fjölskyldunnar í sumar undir slagorðinu ,,Höngum saman í sumar". Leitað var samstarfs við vinnuskóla um allt land og munu krakkarnir sem þar störfuðu vöktu athygli á átakinu með því að koma fyrir sólum hér og þar í bæjarfélaginu með viðeigandi slagorðum.

 

Niðurstöður könnunar um stöðu og hagi ungmenna

Nýjar rannsóknarniðurstöður frá „Rannsóknir og greining” um stöðu og hagi ungmenna í 8., 9. og 10. bekk í Garðabæ eru núna aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar.  Sjá nánar hér.