9. júl. 2009

Íslenski safnadagurinn

Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur sunnudaginn 12. júlí nk. Í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ er boðið upp á leiðsögn um sumarsýningu safnsins og húsgagnageymsluna.
  • Séð yfir Garðabæ

Sunnudaginn 12. júlí nk. verður haldið upp á íslenska safnadaginn. Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ býður þann dag upp á á létta leiðsögn við allra hæfi um sumarsýningu safnsins og húsgagnageymsluna. Leiðsögnin hefst kl. 15:00.

 

 

Þar mætast nýjir og gamlir tímar. Sagt verður frá íslenskum samtímahönnuðum sem hafa unnið fyrir fyrirtæki á borð við Ikea, Puma og  Christofle og sýnd sú ólíka hönnun sem hönnunarsöfn safna og sjá má dæmi um á sumarsýningunni.

 

 

Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Lyngási 7 í Garðabæ og sumarsýningin er opin alla fimmtudaga til sunnudaga í sumar frá kl. 13-17.  Á kaffistofu safnsins eru tímarit og bækur um íslenska og erlenda hönnun og kaffi á könnunni. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

 

 

Markmið með íslenska safnadeginum er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi faglegrar varðveislu og miðlunar hinna sameiginlegu verðmæta þjóðarinnar og jafnframt um þá einstöku leið til lifandi þekkingaröflunar og afþreyingar fyrir alla, sem stofnanir í safnastarfi ástunda.

 

 

Önnur söfn og minjar

Sunndaginn 12. júlí er einnig opið hús í Króki á Garðaholti frá kl. 13-17. Krókur er gamall burstabær þar sem varðveitt eru gömul húsgögn og munir.  Krókur er opinn almenningi til sýnis alla sunnudaga í sumar frá kl. 13-17. Sjá nánari upplýsingar um Krók hér á heimasíðunni.

 

Minjagarður að Hofsstöðum (við Kirkjulund, við hlið Tónlistarskóla Garðabæjar) er opinn allan sólarhringinn. Þar eru leifar af gömlum landnámsskála frá lokum 9. aldar til sýnis og einnig er þar fjölþætt og fróðleg margmiðlunarsýning á snertiskjáum í garðinum. Sjá nánari upplýsingar hér á heimasíðunni.