3. feb. 2009

Fallegar vetrarmyndir

Undanfarna daga hafa verið miklar froststillur og snjór yfir öllu landinu. Hér á heimasíðunni er hægt að skoða fallegar vetrarmyndir
  • Séð yfir Garðabæ

Undanfarna daga hafa verið miklar froststillur og snjór yfir öllu landinu. Hér á heimasíðunni er hægt að skoða fallegar vetrarmyndir sem garðyrkjustjóri Garðabæjar tók á ferð sinni um Garðabæ í síðustu viku.  Sjá myndasafn.

Tilvalið er að stunda útivist í bæjarlandinu og á golfvelli GKG er búið að troða skíðagöngubraut um golfvöllinn. Hægt er að leggja bílum við golfskálann eða æfingasvæðið og skemmta sér á skíðum á meðan snjórinn endist. 

Áhugafólk um útivist getur skoðað kortavef Garðabæjar þar sem hægt er að finna margvíslegan fróðleik um bæinn og gönguleiðir í bæjarlandinu. Sjá kortavef.