22. apr. 2016

40 ára afmæli - fjölbreyttir viðburðir framundan

Garðabær fagnar 40 ára afmæli sínu á árinu 2016 en sveitarfélagið fékk kaupsstaðarréttindi 1. janúar 1976. Gefin hafa verið út tvö afmælisblöð á árinu sem fylgdu með Garðapóstinum. Nýjasta afmælisblaðið fylgdi Garðapóstinum 20. apríl sl.
  • Séð yfir Garðabæ

Garðabær fagnar 40 ára afmæli sínu á árinu 2016 en sveitarfélagið fékk kaupsstaðarréttindi 1. janúar 1976.  Tímamótunum er fagnað á margvíslegan hátt og meðal annars er vakin er athygli á ýmsum föstum viðburðum í menningarlífi bæjarins. Haldið verður upp á afmælið með hátíð í miðbæ Garðabæjar fyrstu helgina í september.  Á árinu verður einnig boðið upp á fjölbreyttar sögu- og fræðslugöngur um bæjarlandið og næsta ganga er fyrirhuguð 10. maí nk. þegar haldið verður í fuglaskoðun um Álftanes.  Þessa dagana stendur Jazzhátíð Garðabæjar sem hæst, Þriðjudagsklassík hefst á ný í næstu viku og Listadagar barna og ungmenna eru haldnir í sjöunda skipti dagana 21. apríl - 1. maí.  

Viðburðir á vef Garðabæjar

Viðburðir í Garðabæ á árinu sem framundan er verða kynntir hér í fréttunum á vef Garðabæjar og í  viðburðadagatalinu.    Einnig er hægt að fylgjast með á fésbókarsíðu Garðabæjar og á instagram síðu bæjarins.  Garðbæingar geta líka tekið þátt í afmælisári Garðabæjar með því að deila fallegum myndum úr bænum á instagram með myllumerkinu #gardabaer40 .  Myndir merktar myllumerkinu birtast á forsíðu Garðabæjarvefsins.

Afmælisblöð

Gefin hafa verið út tvö afmælisblöð á árinu sem fylgdu með Garðapóstinum.  Nýjasta afmælisblaðið fylgdi Garðapóstinum 20. apríl sl. Í blaðinu má lesa grein eftir Baldur Ó. Svavarsson arkitekt þar sem hann rifjar upp bernskuminningar úr Silfurtúninu, einnig eru viðtöl við tvo Garðbæinga sem fagna fertugsafmæli á árinu.  Fjallað er um vígsluafmæli Garðakirkju, sögumolarnir eru á sínum stað og fjallað er um viðburði framundan.

 

Hér á vef Garðabæjar er hægt að sjá meiri umfjöllun um afmælisárið.