Saga Garðabæjar seld í símsölu
Garðbæingar geta þessa dagana átt von á símtali þar sem þeim er boðin Saga Garðabæjar til kaups. Ritið er selt á 19.900 kr. og er hægt að velja um að greiða það í einu lagi eða skipta greiðslunni á allt að sex mánuði.
Garðbæingar geta þessa dagana átt von á símtali þar sem þeim er boðin Saga Garðabæjar til kaups. Ritið er selt á 19.900 kr. og er hægt að velja um að greiða það í einu lagi eða skipta greiðslunni á allt að sex mánuði. Bókin er keyrð heim til þeirra sem kaupa hana í símsölunni.
Höfundur Sögu Garðabæjar er Steinar J. Lúðvíksson. Ritið kom út á árinu 2015, það er liðlega 1900 blaðsíður, sem skipað er niður í fjögur bindi.
Nánari upplýsingar um ritið eru á vef Garðabæjar.