Skráning í Vinnuskóla Garðabæjar hefst 1. maí
Áætlað er að opna fyrir skráningu í Vinnuskólann 1. maí næstkomandi. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 14.-16 ára, fædd árin 2002, 2003 og 2004.
-
Vinnuskóli
Áætlað er að opna fyrir skráningu í Vinnuskólann 1. maí næstkomandi. Vinnuskólinn er fyrir ungmenni á aldrinum 14.-16 ára, fædd árin 2002, 2003 og 2004. Í Vinnuskólanum vinna ungmennin almenn störf eins og garðyrkju, gróðursetningu og hirðingu á lóðum og opnum svæðum bæjarins Fyrir eldri árgangana eru einnig í boði nokkur aðstoðarstörf hjá stofnunum og félögum í Garðabæ.
Hér er hægt að lesa sig til um fyrirkomulag Vinnuskólans síðasta sumar, líklegt er að það verði með svipuðu móti nú í sumar. Dagsetningar breytast eitthvað og ekki er hægt að skrá börnin fyrr en opnað verður fyrir skráningu á ráðningarvef Garðabæjar.