Malbikun við Reykjanesbraut og víðar
Fimmtudaginn 2. júní er stefnt að því að malbika frárein og ramp frá Reykjanesbraut til norðurs upp á Vífilsstaðarveg og ramp og aðrein af Vífilsstaðarvegi niður á Reykjanesbraut til norðurs.
Ramparnir verður lokaðir meðan á framkvæmdum stendur. Áætlað er að malbikun standi yfir milli 09.00 til 18:00, sjá meðfylgjandi myndir með frétt. Sjá einnig lokanir hér í pdf-skjali.
Upplýsingar um þessa framkvæmd eru einnig á vef Vegagerðarinnar.
Malbikun við Bæjarbraut/Karlabraut og Ásgarð
Einnig verða malbikunarframkvæmdir við hringtorgið á Bæjarbraut við Karlabraut á fimmtudagsmorgni 2. júní eftir kl. 09 og við Ásgarð á föstudagsmorgun 3. júní.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Sjá einnig frétt á vef Garðabæjar um malbikunarframkvæmdir og aðrar framkvæmdir í sumar.