1. feb. 2016

Saga Garðabæjar seld í símsölu

Garðbæingar geta þessa dagana átt von á símtali þar sem þeim er boðin Saga Garðabæjar til kaups. Ritið er selt á 19.900 kr. og er hægt að velja um að greiða það í einu lagi eða skipta greiðslunni á allt að sex mánuði.
  • Séð yfir Garðabæ

Garðbæingar geta þessa dagana átt von á símtali þar sem þeim er boðin Saga Garðabæjar til kaups. Ritið er selt á 19.900 kr. og er hægt að velja um að greiða það í einu lagi eða skipta greiðslunni á allt að sex mánuði. Bókin er keyrð heim til þeirra sem kaupa hana í símsölunni.

Höfundur Sögu Garðabæjar er Steinar J. Lúðvíksson. Ritið kom út á árinu 2015, það er liðlega 1900 blaðsíður, sem skipað er niður í fjögur bindi.

Nánari upplýsingar um ritið eru á vef Garðabæjar.