1. júl. 2010

Opið hús í Króki

Krókur á Garðaholti í Garðabæ er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Á hverjum sunnudegi er opið hús frá kl. 13-17.
  • Séð yfir Garðabæ

Krókur á Garðaholti í Garðabæ er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.  Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem tímabundin vinnuaðstaða fyrir listamenn.

 

Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn almenningi til sýnis á sumrin.  Á hverjum sunnudegi er opið hús frá kl. 13-17.  Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu).  Hér á heimasíðunni má sjá nánari upplýsingar um Krók á Garðaholti.  Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.