Sveifla með Mezzoforte
Jazzhátíð Garðabæjar hófst með sannkölluðum stórtónleikum að kvöldi til Sumardaginn fyrsta. Þá mættu til leiks Óskar Guðjónssson saxófónleikari, Mezzoforte og aðrir vinir. Tónleikarnir voru haldnir í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Fjölmenni mætti á tónleikana til að hlýða á framúrskarandi jazz.
Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar hitaði upp fyrir tónleikana og stóð sig vel að vanda. Ómar Guðjónsson steig svo á svið með hljómsveit sinni og bróður síns Ómars Guðjónssonar og flutti ólíka tónlist frá ferli sínum. Eftir hlé steig súpergrúppan Mezzoforte á svið en Óskar hefur leikið með hljómsveitinni undanfarin ár og ferðast víða um heim með hljómsveitinni.
Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar. Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ.
Hátíðin stendur til sunnudagsins 25. apríl nk. og næstu kvöld verður boðið upp á fjölbreytta jazztónleika í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Hér á heimasíðunni má sjá dagskrá hátíðarinnar.
Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar hitaði upp á tónleikunum.
Óskar Guðjónsson tók lagið með stórsveitinni.
Óskar og vinir
Ingibjörg Guðjónsdóttir var gestasöngkona í einu lagi
Fjölmenni mætti á tónleikana sem voru í hátíðarsal FG.
Mezzoforte átti hug og hjörtu allra í salnum þetta kvöld.