Börn frá 15 mánaða á leikskóla
Öll börn sem náð höfðu 15 mánaða aldri fengu vist í leikskóla haustið 2007. Á skólaárinu 2007-2008 voru ellefu leikskólar starfandi í Garðabæ og leikskólabörn voru 608. Þetta er meðal upplýsinga í ársskýrslu leikskóla Garðabæjar skólaárið 2007-2008 sem nú er aðgengileg á vefnum.
Þær breytingar urðu í leikskólamálum á skólaárinu að Montessori setrið hætti starfsemi í júlí 2008 og að leikskólakennarar sem starfa við leikskólann Kjarrið tóku við rekstri hans í ágúst 2008.
51% barna var í leikskólum sem reknir eru af öðrum en Garðabæ og er það annað árið sem það á við um meira en helming leikskólabarna í Garðabæ.
Hlutfall fagfólks í leikskólum í Garðabæ var frá 38% til 75%. Ekki tókst að fullmanna alla leikskólana.
Sem dæmi um þróunar og nýbreytnistarf á skólaárinu má nefna þróunarverkefni leikskólans Hæðarbóls "Nám – leikur - gleði" og verkefni Sunnuhvols um hreyfingu og næringu.
Níu dagforeldrar eru við störf í Garðabæ með 31 barn í dvöl hjá sér og starfa þeir samkvæmt þjónustusamningi við Garðabæ og foreldra. Greitt var alls með 52 börnum í vist hjá dagforeldrum.
Ársskýrslan er aðgengileg á vefnum á síðunni skólar/leikskólar