29. jan. 2021

Ný forvarnastefna Garðabæjar í vinnslu

Nú stendur yfir vinna við gerð nýrrar forvarnastefnu Garðabæjar og íbúar geta sent inn ábendingar eða athugasemdir um stefnuna til og með 8. febrúar nk.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar fylgir eftir stefnumótun og þróun forvarna í bæjarfélaginu. Nú stendur yfir vinna við gerð nýrrar forvarnastefnu Garðabæjar en eldri forvarnastefna bæjarins er frá árinu 2014. 

Ábendingar íbúa, félagasamtaka og fleiri aðila

Drög að stefnunni liggja fyrir og íbúar Garðabæjar geta hér skoðað drögin hér á vef Garðabæjar og sent inn ábendingar eða athugasemdir um stefnuna.  Sjá ábendingaform hér þar sem íbúar, fulltrúar og aðri sem vilja senda inn athugasemdir geta gert það til og með mánudagsins 8. febrúar nk.

Stefnan ásamt ábendingum/athugasemdum verður tekin til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar í febrúar. Stefnan verður einnig send til umsagnar í nefndum Garðabæjar áður en hún verður lögð fyrir bæjarstjórn Garðabæjar til samþykktar.

Áhersluþættir í nýju forvarnarstefnunni

Áhersluþættir í nýju forvarnastefnunni koma fram í undirköflunum upplýst-, öruggt-, öflugt-, hvetjandi-, ábyrgt-, og heilsueflandi samfélag. Hver áhersluþáttur tengist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem birtist með táknmyndum þeirra kafla sem tengingin á við og bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að stefna að.

Innan þessara áhersluþátta eru talin upp leiðarljós sem unnið skal að með tilteknum „stoðum“, sem aftur leiða af sér „aðgerðir“. Aðgerðaráætlanir verða síðan til á hverju sviði stjórnsýslunnar. Skulu þær ávallt taka mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Með þessu er stefnt að því að hafa ávallt yfirsýn yfir forvarnir í Garðabæ og hvaða svið er ábyrgt varðandi þau verkefni sem eru í gangi.