16. maí 2018

Öryggismyndavélar á Arnarneshæð

Í febrúar síðastliðnum undirrituðu Garðabær, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Neyðarlínan ohf samkomulag um verklag við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í Garðabæ. Nú eru fyrstu vélarnar komnar upp.

  • Öryggismyndavélar Arnarneshæð
    Öryggismyndavélar Arnarneshæð

Í febrúar síðastliðnum undirrituðu Garðabær, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Neyðarlínan ohf samkomulag um verklag við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í Garðabæ. Um er að ræða kerfi sem eingöngu er ætlað að þjóna þörfum lögreglu og annarra neyðaraðila. Notkun kerfisins og aðgangur að gögnum úr kerfinu verður samkvæmt reglum lögreglu og Persónuverndar. 

Fyrsta öryggismyndavélin sem fellur undir samningin var sett upp á Álftanesi og nú hefur önnur verið sett upp við hringtorgið á Arnarneshæð við Krónuna en þar er öll umferð vöktuð. Á næstu dögum verður svo öryggismyndavél sett upp við Vífilstaðarveg neðan við aðkeyrsluna að Flataskóla. Sú vél vaktar einnig umferð í allar áttir.

Stefnt er að því að koma upp allt að 10 öryggismyndavélum í Garðabæ á gildistíma samningsins til loka ársins 2020. 

Lögreglan annast vöktun


Samkvæmt samkomulaginu sér Garðabær um að kaupa vélarnar, setja upp og merkja með viðvörunum um rafræna vöktun í samræmi við lög um persónuvernd.  Lögreglan annast vöktun á myndefninu og tekur ákvörðun um aðgang annarra neyðaraðila að myndefninu.  Staðsetning á myndavélunum er ákveðin af lögreglu í samráði við Garðabæ og Neyðarlínuna.  Neyðarlínan aðstoðar m.a. við uppsetningu og viðhald á öryggismyndavélunum og ber ábyrgð á flutningi merkis frá myndavélinni í endabúnað lögreglunnar. 

Frétt um undirritun samkomulagsins frá því í febrúar.