3. des. 2021

Parhúsalóðir í Kumlamýri á Álftanesi

Garðabær auglýsti nýverið til sölu byggingarrétt 26 parhúsalóða í Kumlamýri á Álftanesi. Tilboð í byggingarrétt þarf að berast á bæjarskrifstofur Garðabæjar fyrir kl. 12:00 föstudaginn 10. desember 202.

  • Loftmynd Álftanes Kumlamýri
    Parhúsalóðir í Kumlamýri á Álftanesi

Garðabær auglýsti nýverið til sölu byggingarrétt 26 parhúsalóða í Kumlamýri á Álftanesi. Sjá auglýsingu hér.
Heildarskipulag svæðisins miðar að því að framtíðarbyggð verði í sem bestu samræmi við umhverfið og taki mið af hugmyndinni um Álftanes sem „sveit í borg“. Þannig er gert ráð fyrir lifandi og fjölbreyttri byggð í góðum tengslum við skóla og útivistarsvæði.

Kumlamýri, ný gata, liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast botnlangar. Parhús við Kumlamýri verða áþekk einbýlishúsum í útliti með mæni og nýtanlegu risi. Parhúsin eru staðsett saman í þyrpingu með sameiginlegu götu- og íverusvæði í miðju. Húsin verða 1 hæð og ris.

Einungis einstaklingar geta gert tilboð í lóðirnar

Einungis einstaklingar geta gert tilboð í lóðirnar og þurfa tveir einstaklingar saman að gera sameiginlegt tilboð í tvær samliggjandi parhúsalóðir og eru sameiginlega ábyrgir fyrir greiðslu byggingarréttargjalds fyrir báðar lóðirnar. Tilboðsfjárhæð í hvora lóð skal vera sú sama í báðum tilvikum. Þeir sem eru skráðir á sama heimili, eins og hjón og fólk í sambúð geta aðeins staðið saman að einni umsókn.
Gatnagerðargjald miðast við byggða m2 og við það bætist byggingarréttargjald sem er að lágmarki 10.000.000 kr.
Óskað er eftir tilboðum í óskilgreindar samliggjandi lóðir og getur sami einstaklingurinn aðeins boðið í eina lóð.

Tilboð þurfa að berast fyrir kl. 12 föstudaginn 10. desember nk.

Í auglýsingu um lóðirnar eru nánari upplýsingar um úthlutunarskilmála og deiliskipulag – sjá hér.
Tilboð í byggingarrétt þarf að berast í lokuðu umslagi, merkt ,,Kumlamýri – parhúsalóð", á bæjarskrifstofur Garðabæjar fyrir kl. 12:00 föstudaginn 10. desember 2021 og skulu tilboð gilda í fjórar vikur frá opnun tilboða.