3. jún. 2021

Rafrænum kosningum Betri Garðabæjar lýkur á miðnætti 7. júní

Taktu þátt og kjóstu þín uppáhaldsverkefni! Rafrænar kosningar í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ hafa farið vel af stað og hægt er að kjósa til miðnættis mánudaginn 7. júní nk. 

  • Rafrænar kosningar - Betri Garðabær
    Betri Garðabær - rafrænar kosningar 26. maí - 7. júní 2021

Rafrænar kosningar í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæ hafa farið vel af stað og hægt er að kjósa til miðnættis mánudaginn 7. júní nk. Alls eru 23 hugmyndir á rafrænum kjörseðli og 15 ára og eldri með lögheimili í Garðabæ geta kosið. Betri Garðabær er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ.

RAFRÆNAR KOSNINGAR Í BETRI GARÐABÆ - 26. MAÍ -7. JÚNÍ 2021 -Smelltu hér til að kjósa!

23 verkefni eru á rafrænum kjörseðli í kosningunum sem hófust 26. maí sl. og standa til 7. júní. Íbúar sem verða 15 ára á kosningaárinu (fæddir 2006) og eldri, með skráð lögheimili í Garðabæ fá þar tækifæri til að ráðstafa allt að 100 milljónum í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í sveitarfélaginu næstu tvö árin. Kjósendum er boðið upp á að hjartamerkja eitt verkefni sem gefur því aukaatkvæði. Þá er mögulegt að greiða atkvæði oftar en einu sinni, en það er nýjasta atkvæðið sem gildir.

Kosningarvefurinn er aðgengilegur frá vef Garðabæjar, gardabaer.is. Allir geta skoðað kosningavefinn en til að kjósa í lokin þegar búið er að velja hugmyndir og ráðstafa fjármagninu þarf að skrá sig inn með öruggum hætti, þ.e. með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Atkvæðið er dulkóðað og aldrei hægt að tengja atkvæði við einstaklinga.

Hægt er að kjósa í eigin tölvum eða snjalltækjum en einnig er hægt að koma og nota tölvur í þjónustuveri Garðabæjar og í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og Álftanesútibúi.

Hugmyndir íbúa nýtast áfram

Fjölmargar góðar hugmyndir bárust í hugmyndasöfnun verkefnisins sem stóð yfir fyrr í vor og þó þær falli ekki allar undir skilyrði Betri Garðabæjar lifa þær áfram og nýtast í önnur verkefni á vegum bæjarins eða fara beint í framkvæmd. Þannig verður hverju sviði og forstöðumönnum sendar þær hugmyndir sem tilheyra þeim til frekari skoðunar og einhverjum hugmyndum verður vísað beint til umfjöllunar í fastanefndum bæjarins.

Hér má sjá lista yfir hugmyndir sem bárust í vor þegar hugmyndasöfnun stóð yfir dagana 17. febrúar - 8. mars. 

Nánari upplýsingar um lýðræðisverkefnið Betri Garðabæ.