23. mar. 2021 Stjórnsýsla

Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu

Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Umsóknarfrestur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu er til 29. mars nk.

  • Undirritun samnings um Ratsjána
    Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðakklasans, og Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH.

Mánudaginn 22. mars sl. skrifuðu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastóri SSH (Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, undir samning um Ratsjána á höfuðborgarsvæðinu.  Sjá nánar í frétt hér á vef SSH. 

Ratsjáin er nýsköpunar- og þróunarverkefni Íslenska ferðaklasans og er um að ræða ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningi frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.

Umsóknarfrestur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu til að taka þátt er til 29. mars nk. Nánari upplýsingar um Ratsjána má sjá hér.

Verkefnið er hluti af framfylgd sóknaráætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið.
Nánari upplýsingar um sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins á vef SSH.