Sms skilaboð til íbúa
Í sumar hefur Garðabær tekið í notkun nýtt kerfi sem býður upp á að senda sms skilaboð til íbúa í ákveðnum götum og hverfum bæjarins.
Í sumar hefur Garðabær tekið í notkun nýtt kerfi sem býður upp á að senda sms skilaboð til íbúa í ákveðnum götum og hverfum bæjarins. Það hefur nú þegar reynst vel að nota það þegar viðgerðir hafa staðið yfir hjá Vatnsveitu Garðabæjar. Þá eru send skilaboð til íbúa í þeim húsum, götum sem við á þegar loka þarf fyrir rennsli kalda vatnsins í stuttan tíma vegna lekaleitar og/eða viðgerðar.
Í frétt hér á vef Garðabæjar fyrr í júlí má sjá ýmsar gagnlegar upplýsingar um vatnsveitu Garðabæjar.
Skráning í skilaboðakerfi Garðabæjar
Skilaboðakerfið er tengt við kortavef Garðabæjar og þar er hægt að velja úr einstaka hús og götur og þá fá símanúmer sem eru skráð á þau heimilisföng í gegnum þjónustuna 1819 sms skilaboð þegar við á.
Ef símanúmer viðkomandi er ekki skráð hjá 1819 er hægt að óska eftir því að skrá það inn í skilaboðakerfið hjá Garðabæ með því að senda tölvupóst á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is , með nafni, símanúmeri og heimilisfangi.