31. maí 2019

Sumarnámskeið fyrir börn

Á vef Garðabæjar má sjá upplýsingar um sumarnámskeið fyrir börn sem eru í boði í Garðabæ í sumar.  

  • Sumarnámskeið fyrir börn
    Sumarnámskeið fyrir börn

Á vef Garðabæjar má sjá upplýsingar um sumarnámskeið fyrir börn sem eru í boði í Garðabæ í sumar.  Þar eru helstu upplýsingar um námskeiðin og hlekkir yfir á vefsíður/skráningarsíður þeirra félagasamtaka sem halda námskeiðin.  

SUMARNÁMSKEIÐ - UPPLÝSINGAR

Þar má finna upplýsingar um sumarnámskeið skátafélaganna Vífils og Svana, sumarnámskeið íþróttafélaganna Stjörnunnar og UMFÁ, söngleikjanámskeið Drauma, skapandi sumarnámskeið Klifsins, listasmiðju á Álftanesi, sumarlestur og ritsmiðjunámskeið á Bókasafni Garðabæjar, skapandi sumarnámskeið Dansskóla Birnu Björns, sumarnámskeið Alþjóðaskólans og margt fleira.