Sumarstörf - umsóknarfrestur rennur út 7. mars nk.
Garðabær hefur auglýst til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir ungt fólk árið 2022. Minnt er á að umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 7. mars nk.
-
Sumarstörf 2022
Garðabær hefur auglýst til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir ungt fólk árið 2022. Um er að ræða ýmis störf í bænum, allt frá almennum garðyrkjustörfum til sérhæfðari starfa í stofnunum.
Nánari upplýsingar um störfin:
Minnt er á að umsóknarfrestur um sumarstörfin er til og með mánudagsins 7. mars 2022. Sótt er um störfin á ráðningarvef Garðabæjar. Þegar umsókn hefur verið fullkláruð berst staðfestingarpóstur um að umsókn sé móttekin. Berist sá póstur ekki þarf að yfirfara skráningu umsóknar.