23. mar. 2020

Sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og söfnum lokað

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður.

  • covid.is
    covid.is - upplýsingavefur fyrir almenning um COVID-19 faraldurinn

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu. Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður. Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.

Þessi fyrirmæli hafa áhrif á þjónustu sveitarfélaga:

  • Öllum sundlaugum, íþróttamiðstöðvum og söfnum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað frá miðnætti 23. mars.
  • Grunnskólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börn sín í skólann (þ.e. ef þau eru ekki veik) þurfa að tilkynna það líkt og um skólaleyfi væri að ræða og taka um leið yfir ábyrgð á heimanámi barna sinna.
  • Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.

Upplýsingar á vef Garðabæjar um áhrif COVID-19 á þjónustu og starfsemi Garðabæjar.

ENGLISH Closing of swimming pools, sport centers and museums in Garðabær Municipality

The Minister of Health has decided, in accordance with the Directorate of Health proposal, to limit gatherings even further than before due to the faster spread of Covid-19 in the community. Events where people come together will be limited to 20 people instead of 100 before. In addition, it must be ensured that more than 2 meters distance is kept between each and everyone. The decision will take effect on the midnight Monday night of March 23rd.

These instructions affect the services of municipalities:

  • All swimming pools, sports centers, museums and libraries in the capital area will be closed from midnight on March 23. 
  • Elementary Schools and kindergartens will continue to be open but those parents or guardians who for some reason do not send their children to school (that is if they are  not sick) need to report it as if it were a school permit and at the same time take responsibility for their children's homeschooling.

Upplýsingar á Covid.is

Á vefnum covid.is eru upplýsingar fyrir almenning um Covid-19 faraldurinn. Vefurinn er á vegum embættis Landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Information in English and Polish on Covid.is.