28. maí 2020

Umsóknarfrestur um sumarstörf til og með 1. júní

Um miðjan maí var opnað fyrir umsóknir um ný og fleiri sumarstörf fyrir 17-25 ára ungmenni með lögheimili í Garðabæ. Umsóknarfrestur fyrir störfin er til og með 1. júní nk. 

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Um miðjan maí var opnað fyrir umsóknir um ný og fleiri sumarstörf fyrir 17-25 ára ungmenni með lögheimili í Garðabæ. Umsóknarfrestur fyrir störfin er til og með 1. júní nk. 

Öll ungmenni á aldrinum 17-25 ára með lögheimili í Garðabæ geta sótt um sumarstörf en ekki er hægt að tryggja val um ákveðin störf en tryggt er að allir sem sækja um fyrir lok umsóknarfrests 1. júní nk. fái sumarvinnu hjá Garðabæ. Þeir sem eru 18-25 ára býðst 87,5% starf í 7 vikur og 17 ára býðst 75% starf í 6 vikur í sumar.

Störfin eru öll auglýst hér á vef Garðabæjar þar sem eru nánari upplýsingar um þau og hlekkur yfir á ráðningarvef Garðabæjar þar sem sótt er um störfin rafrænt.

Um er að ræða sumaratvinnuátak Garðabæjar vegna atvinnuástandsins í þjóðfélaginu í tengslum við COVID-19 faraldurinn. Hluti starfanna er einnig í tengslum við sumaratvinnuátak fyrir námsmenn á landsvísu í samvinnu við Vinnumálastofnun.