14. júl. 2020

Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa fimmtudaginn 16. júlí kl. 17-20, matarvagnar verða á svæðinu

Fimmtudaginn 16. júlí milli kl. 17 og 20 munu Skapandi sumarstörf halda uppskeruhátíð á Garðatogi 7. Þar gefst gestum kostur á að sjá afrakstur sumarsins hjá starfsfólki Skapandi sumarstarfa.

Fimmtudaginn 16. júlí milli kl. 17 og 20 munu Skapandi sumarstörf halda uppskeruhátíð á Garðatogi 7. Þar gefst gestum kostur á að sjá afrakstur sumarsins hjá starfsfólki Skapandi sumarstarfa en hópurinn er hluti af sumarstarfi ungmenna í Garðabæ. Markmiðið með starfinu er að styðja við ungt skapandi fólk í bænum en á hátíðinni verða fjölbreytt verkefni til sýnis ásamt því að haldnir verða tónleikar.

Fyrr í sumar héldu Skapandi sumarstörf sumarhátíð og má sjá myndir frá þeim viðburði hér.  Einnig er hægt að fylgjast með vinnu ungmennanna á samfélagsmiðlum, skapandigbr . Á meðan á viðburðinum stendur verða matarvagnar frá Gastro truck og Vöffluvagninum staðsettir við inngang Garðatorgs 7.