6. jún. 2025 Félagslíf

Félagsmiðstöðvar Garðabæjar opnar í sumar – Ungmenni hvött til að mæta

Félagsmiðstöðvar bæjarins standa vaktina í sumar og bjóða upp á opið hús.

Nú þegar skólavetrinum er lokið og unglingar Garðabæjar stíga inn í sumarið með frelsið í farteskinu, ætla fjórar félagsmiðstöðvar bæjarins að standa vaktina áfram og bjóða upp á opið hús yfir sumarmánuðina.

Markmiðið er að skapa öruggt og uppbyggilegt athvarf þar sem unglingar geta hist, átt ánægjulegar stundir saman og notið leiðsagnar reyndra starfsfólks félagsmiðstöðvanna.

Hver félagsmiðstöð verður opin einu sinni í viku og býðst því unglingum að sækja félagsmiðstöðvar fjórum sinnum í viku:

  • Klakinn verður opinn á mánudögum
  • Elítan á þriðjudögum
  • Garðalundur á miðvikudögum
  • Urri á fimmtudögum

Opnunartíminn er frá kl. 19:30 til 22:30.

Að mati starfsfólks félagsmiðstöðvanna felst mikið forvarnargildi í því að bjóða ungmennum vettvang til samveru yfir sumartímann. Þar skapast tækifæri til að efla tengsl, styrkja sjálfsmynd og njóta leiðsagnar í öruggu og jákvæðu umhverfi. Ungmenni Garðabæjar eru því hvött til að kíkja við og taka þátt í fjölbreyttu og skemmtilegu félagsstarfi í sumar.

Garðabæjarleikar í Heiðmörk

Þann 25. júní halda félagsmiðstöðvarnar svo sameiginlegan viðburð: Garðabæjarleikar í Heiðmörk. Þar munu unglingar úr öllum félagsmiðstöðvunum koma saman og keppa í hinum ýmsu þrautum og íþróttum. Þetta verður líflegur og skemmtilegur dagur þar sem áhersla verður lögð á samvinnu, gleði og jákvæð samskipti.

Félagsmiðstöðvarnar mikilvægur vettvangur í tilveru unglinga