30. des. 2020

Höldum jólakúluáramót

Flugeldasýning hjálparsveitar skáta í Garðabæ verður haldin á gamlárskvöld kl. 21:00 við Arnarnesvoginn og ætti að sjást víða að þannig að íbúar geti notið hennar úr fjarlægð heiman frá eða útivið á göngustígum án þess að safnast saman.

Eins og fram hefur komið verða engar brennur á höfuðborgarsvæðinu í ár til að draga úr hættu á hópamyndun.  Flugeldasýning hjálparsveitar skáta í Garðabæ verður haldin á gamlárskvöld kl. 21:00 við Arnarnesvoginn og ætti að sjást víða að þannig að íbúar geti notið hennar úr fjarlægð heiman frá eða útivið á göngustígum án þess að safnast saman. 

Fólk sem hyggst njóta sýningarinnar utandyra er beðið um að virða fjarlægðatakmörk og sóttvarnareglur.

Jólakúluáramót

Á vefnum covid.is er að finna margvíslegar upplýsingar fyrir almenning um Covid-19 faraldurinn. Þar á meðal eru góð ráð fyrir jólin og hvatning til að halda upp á jól og áramót með öðru sniði. Sjá einnig hér í frétt á vef Garðabæjar. 

Afgreiðslutímar um jól og áramót

 

Frétt um afgreiðslutíma ráðhúss, bókasafns, Hönnunarsafns og sundlauga Garðabæjar um jól og áramót. 

Starfsfólk Garðabæjar óskar Garðbæingum sem og öðrum viðskiptavinum gleðilegrar hátíðar.