24. feb. 2021

Innritun í grunnskóla og kynningar skóla

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2015) og 8. bekk (f. 2008) fer fram dagana 8.-12. mars nk.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2015) og 8. bekk (f. 2008) fer fram dagana 8.-12. mars nk. Innritað er rafrænt hér á Þjónustugátt Garðabæjar.

Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt.

Nánari upplýsingar um innritun má finna hér. 

Innritun í frístundaheimili

Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram dagana 8.-12. mars nk. Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.
Innritað er rafrænt hér á Þjónustugátt Garðabæjar.

Kynningar hjá grunnskólum

Vegna Covid verða ekki hefðbundin opin hús hjá skólunum í mars. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna þar sem finna má gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið. 

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir ef haft er samband við skrifstofu skólanna í t-pósti eða síma. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Upplýsingar um kynningar hjá grunnskólum í Garðabæ í mars fyrir forráðamenn nýnema má sjá hér.