7. apr. 2021 Grunnskólar Lýðheilsa og forvarnir

Opinn fundur kl. 20 í kvöld í beinni útsendingu um líðan unglinga í Garðabæ

Í kvöld, miðvikudaginn 7. apríl kl. 20:00, verður bein útsending á netinu frá opnum fundi um líðan unglinga í Garðabæ. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!

  • Hjólakraftshópur

Í kvöld, miðvikudaginn 7. apríl kl. 20:00, verður bein útsending á netinu frá opnum fundi um líðan unglinga í Garðabæ. 

Fundurinn verður í beinni útsendingu:  

Foreldrar allra árganga grunnskólabarna og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum. Hægt er að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum útsendinguna á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Nýjar upplýsingar um hagi og líðan barnanna okkar. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!

Á fundinum kynnir Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu  niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk. Könnunin var framkvæmd í febrúar 2021 meðal nemenda í 5.-10. bekk í öllum skólum landsins. Í könnuninni er spurt um hegðun og líðan barnanna, notkun samfélagsmiðla og tölvuleikja, heilsu og líðan, svefn og klámnotkun. Skoða má niðurstöður könnunarinnar á landsvísu á vefnum https://www.rannsoknir.is

Fulltrúar frá Grunnstoð Garðabæjar (fulltrúar foreldrafélaga í grunnskólum Garðabæjar) segja í byrjun fundar frá grunnstoðinni og foreldrarölti sem er verið að setja af stað aftur í maí eftir nokkurra ára hlé.


Við hvetjum foreldra barna og ungmenna í Garðabæ til að þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að fá upplýsingar um líðan barnanna okkar og hvað raunverulega er að gerast í umhverfinu okkar.