11. nóv. 2022 Almannavarnir Covid–19 Stjórnsýsla

Rýnifundir almannavarna vegna Covid-19

Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eiga í góðu samstarfi um almannavarnir. Undanfarna daga hafa almannavarnir höfuðborgarsvæðisins staðið fyrir rýnifundum til að draga lærdóm af Covid-19 aðgerðunum með það að markmiði að vera betur undirbúin fyrir næstu vá. 

  • Í efri röð er: Birgir Finnsson slökkviliðstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Sigríður Björg Tómasdóttir almannatengill Kópavogsbæjar, Ásdís Gíslason, upplýsingafulltrúi Slökkviliðs höfuðborgarsvæ
    Í efri röð er: Birgir Finnsson slökkviliðstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Sigríður Björg Tómasdóttir almannatengill Kópavogsbæjar, Ásdís Gíslason, upplýsingafulltrúi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Hugrún Ósk Ólafsdóttir verkefnistjóri hjá Mosfellsbæ, Eva Bergþóra, samskiptastjóri Reykjavíkur, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi velferðarsviðs Reykjavíkur, Bjarni Brynjólfsson verkefnastjóri og Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri Garðabæjar. í neðri röð eru María Björk Óskarsdóttir sviðstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Seltjarnarnesbæjar, Árdís Ármannsdóttir samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir deildarstjóri almannavarna á höfuðborgarsvæðinu

COVID-19 faraldrinum er ekki lokið en þó lítið sé um stórar aðgerðir hér á Íslandi. Í þeim aðgerðum sem voru í gangi vegna COVID-19, spiluðu sveitarfélögin stórt hlutverk og voru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu alls ekki undanþegin. Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru með starfandi neyðarstjórn sem voru virkar þegar þess þurfti. Hlutverk þeirra er að halda uppi þjónustu og starfsemi sveitarfélaganna á almannavarnatímum.

Til að halda uppi þjónustu og starfsemi miðað við þær reglugerðir sem voru í gildi og samhæfa aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu, funduðu sviðstjórar skóla- og frístundasviða, velferðarsviða og fulltrúar íþróttastarfs og menningar reglulega og eins oft og þurfti með almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu. Fundað var í hvert skipti sem ný reglugerð leit dagsins ljós en þær voru alls 166 á tímabilinu 27. janúar 2020- 24. febrúar 2022. Upplýsingafulltrúar sveitarfélagana voru í lykilhlutverki við að koma upplýsingum áleiðis til íbúa, starfsfólks og annarra aðila.

Þessa dagana er verið að draga lærdóm af aðgerðunum og til að vera betur undirbúin fyrir næstu vá. Á meðfylgjandi mynd með frétt er starfsfólk almannavarna og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins ásamt upplýsingafulltrúum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu eftir rýnifund í vikunni.

Það sem upp úr stendur er ótrúleg elja og útsjónarsemi starfsfólks sveitarfélaga við krefjandi aðstæður og eiga þau hrós skilið fyrir það.

Upplýsingar um almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu.