25. mar. 2021 Stjórnsýsla Velferð

Svanhildur Þengilsdóttir er nýr sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar

Svanhildur Þengilsdóttir hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar.

  • Svanhildur Þengilsdóttir
    Svanhildur Þengilsdóttir nýr sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar

Svanhildur Þengilsdóttir hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar.
Alls bárust 14 umsóknir um starfið. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 18. mars sl. var samþykkt tillaga bæjarstjóra um að ráða Svanhildi Þengilsdóttur í umrætt starf.

Svanhildur er með B.Sc. í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Svanhildur býr yfir víðtækri rekstrar- og stjórnunarreynslu og fjölbreyttri starfsreynslu á sviði heilbrigðis - og velferðarþjónustu, hún hefur frá árinu 2019 gegnt starfi forstöðumanns stuðnings- og öldrunarþjónustu Garðabæjar.

Svanhildur gegndi starfi svæðisstjóra Heilsugæslu Mosfellsumdæmis á árunum 2016-2019 og var yfirmaður þjónustu- og ráðgjafadeildar aldraðra í Kópavogi frá 2004-2016. Áður starfaði hún við fjölbreytt verkefni innan Rauða kross Íslands, í öldrunarþjónustu hjá Múlabæ og hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut.

Svanhildur tekur við starfi sviðsstjóra fjölskyldusviðs Garðabæjar frá 1. apríl nk.