13. okt. 2022 Bókasafn Íbúasamráð Menning og listir

Þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar

Starfsfólk Bókasafns Garðabæjar leitar til bæjarbúa og aðra sem sækja safnið heim að taka þátt í stuttri rafrænni þjónustukönnun um starfsemi safnsins. 

Niðurstöður úr könnuninni eiga að aðstoða starfsfólk safnsins við að þróa og byggja upp Bókasafn Garðbæjar í takt við samfélagið og að endurspegla kröfur og væntinga gesta safnsins. Markmiðið er að veita sem besta þjónustu, fjölbreyttasta úrval bóka og gagna, viðburða og klúbba sem völ er á.

Krækja á könnun:

Þjónustukönnun Bókasafns Garðabæjar 2022

Ekki er hægt að rekja svörin.  Sjá einnig upplýsingar í frétt á vef Bókasafns Garðabæjar.